27.01.1943
Neðri deild: 43. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (1269)

114. mál, hafnarlög fyrir Keflavík

Finnur Jónsson:

Sjútvn. hefur athugað þetta frv. og leggur eindregið til, að það verði samþ. Um þau fjárframlög, sem um er að ræða í frv., skal það fram tekið, að þau hafa þegar verið innt af hendi að mestu leyti samkvæmt fyrri ákvörðunum stj. Frv. er því að mestu leyti staðfesting á því, sem búið er að gera, og er full ástæða fyrir Keflavík að fá sams konar l. um sína hafnargerð og aðrar verstöðvar.

Ég óska, að málinu verði vísað til 3. umr. að lokinni þessari umr.