28.01.1943
Neðri deild: 44. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (1272)

114. mál, hafnarlög fyrir Keflavík

Ólafur Thors:

Vegna þess að frsm. n. og ég vorum á fundi, þegar 2. umr. fór fram, og ekki varð úr umræðum, vildi ég standa upp nú og þakka n. fyrir, hvernig hún tók þessu máli og hve fljótt hún afgreiddi það, og leyfi mér að vænta þess, að það sigli áfram hraðbyri.