18.01.1943
Efri deild: 35. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í B-deild Alþingistíðinda. (1308)
59. mál, þingfararkaup alþingismanna
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Eins og sést á nál. fjhn. á þskj. 198, þá var n. á einu máli um það að ráða hv. d. til að samþ. þetta frv. með lítilli breyt. við orðalag á 1. gr., svo að skýrar komi í ljós, ef þingmaður búsettur utan Rvíkur óskar eftir húsnæði í hinum fyrirhugaða bústað, þá verði hann að tilkynna það með hæfilegum fyrirvara. Ekki er nánar ákveðið um þennan fyrirvara, en ég tel sjálfsagt, að hann verði auglýstur á hverjum tíma. Eins og á stóð t.d. í haust, er Alþ. var kvatt saman rétt eftir kosningar, þá yrði þessi fyrirvari að miðast við það, því að ekki er hægt að ætlast til, að menn tilkynni neitt um þetta fyrr en þeir vita, að þeir hafi náð kosningu.
Við 1. umr. þessa máls var því beint til n. af hv. þm. Barð., að hún tæki til athugunar, hvort ekki mætti taka bústað forsrh. fyrir þingmannabústað. Ég skal játa, að n. hefur ekki mikið athugað þetta mál, en lítur svo á, ef frv. þetta nær samþykki, þá verði það framkvæmdaratriði í höndum stj., hvernig séð verður fyrir því, sem er aðalatriðið, að þingmenn geti búið hér um þingtímann við viðunandi kjör.
En að öðru leyti vísa ég til þess, er ég sagði hér við 1. umr., ef taka á forsætisráðherrabústaðinn án þess að ætla forsrh. annan bústað, þá er gengið út frá því sem alveg gefnu, að sá ráðh. verði alltaf búsettur hér í bænum. Það hefur nú verið svo lengi, en eins og ég sagði við 1. umr., þá er það vitanlega ekki alveg sjálfsagt mál. Ég benti þá á, að fyrsti ráðh. okkar og hreint ekki sá sízti kom frá Ísafirði, og annar kom austan úr Skaftafellssýslu. Þetta finnst mér vel geta orðið enn þá, þótt það sé e.t.v. goðgá í augum Reykvíkinga að gera ráð fyrir því. Ef hann kæmi utan af landi, þá væri ekki sæmilegt, að hann hefði ekki að neinu að hverfa hér, nema þá herbergi í þingmannabústaðnum, ef það væri til.
Nú, e.t.v. verða forsætisráðherrar þjóðarinnar eingöngu úr Rvík, ég skal játa, að það er ekki ólíklegt, þar eð um 3/5 hlutar þm. eru nú búsettir hér. En n. hefur þó ekki séð ástæðu til að ganga út frá því sem alveg gefnu.
Náttúrlega má nærri geta, hvað þeir Reykvíkingar hugsa um þetta mál, sem eru sama sinnis og einn hv. þm., er talaði hér fyrir fáeinum dögum. Hann taldi það alveg fjarstætt, að maður úr Grímsey eða úr Þaralátursfirði eða úr þriðja staðnum, sem hann nefndi, yrði skipaður í n. Hvað mundi hann þá hugsa um forsrh. úr þessum stöðum.
Eins og ég sagði áðan, þá telur n. ekki rétt að ganga út frá þessu sem gefnu, og hefur því ekki gert neinar till. um þetta atriði.
Ég geri nú ekki ráð fyrir, að hafizt verði handa um byggingu meðan stríðið stendur. En mér er nær að halda, að ríkið eigi hús, er nota mætti e.t.v. í þessu skyni. Þetta vildi ég taka fram út af orðum hv. þm. Barð. við 1. umr.
Annars gerir n. ráð fyrir, að framkvæmd þessa máls verði í höndum stj. eins og önnur l., ef að l. verður. Hún mælir því aðallega með frv. efnislega, en efni þess virðist sjálfsagt og réttmætt, að þm. sé tryggt, að þeir geti verið hér, úr því þeir eru kallaðir til þess af þjóðinni, þó störfin þyki nú misjafnlega ganga.
Hér hafa á síðustu árum verið byggðir tveir stúdentagarðar, ég nefni þetta aðeins. En nú er svo komið, að þingmenn dvelja hér orðið litlu skemur en stúdentar utan af landi. En svo misjafnlega hefur verið skipt, að bæði einstaklingar og hið opinbera hafa keppzt um að styrkja þessa bústaði stúdentanna, en þm. utan af landi hafa hér ekkert hæli. Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekara. Ég lit svo á, að auk réttlætismáls gæti verið hér um menningarmál að ræða. Þetta gæti orðið til bóta fyrir störf þingsins, þm. fengið meiri starfsfrið, og þm. fengju tækifæri til að hittast og talast við utan þingfunda og flokksfunda.
Ég vil aðeins benda á það, sem allir hv. þm. vita þó, að hér er nýbúið að opna kaffisölu í húsinu. Ef þingmannabústaður yrði byggður hér í grennd við Alþingishúsið, t.d. þar sem svokallað Templarahús er, sem mætti nú missa sig af þeim stað, sem það er nú, þá er það svo skammt frá Alþingishúsinu, að vel mætti hafa veitingarnar þar fyrir þm. yfirleitt og færi að sumu leyti betur á því.