13.01.1943
Neðri deild: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (1404)

7. mál, vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Frsm. (Ingólfur Jónsson):

Hér er komin fram brtt. á 180. þskj. frá hv. þm. V.-Sk., og vil ég lýsa yfir þeirri ósk minni, að hún nái samþykki. Ég tel, að hún þurfi ekki að hafa í för með sér aukin útgjöld ríkissjóðs, og er hún þess vegna meinlaus. Ég hef átt tal um þetta við hv. samnm. mína í fjhn., og eru þeir mér sammála. Skal ég svo ekki orðlengja þetta.