06.02.1943
Efri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (1578)
75. mál, lögsagnarumdæmi Neskaupstaðar
Forseti (StgrA):
Út af aths. frá hv. 1. þm. Eyf. (BSt) vil ég taka fram, að ég veit ekki, hvort á að skoða hans orð sem beina ósk um að fresta þessu máli. (BSt: Jú, og að gengið verði eftir nál.). Ég leyfi mér að svara því, að eins og tekið hefur verið fram, hefur minni hl. n. haft nægan tíma til þess að skila áliti sínu, svo að ég sé í raun og veru ekki ástæðu til að tefja málið við þessa umr. frekar en orðið er. Enda er tækifæri fyrir minni hl. n. við 3. umr. að koma fram með brtt. við frv., ef hann ætlar sér það. Ég mun þess vegna afgreiða málið nú við þessa umr.