12.01.1943
Neðri deild: 30. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (1644)
4. mál, áfengislög
Frsm. meiri hl. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. — Þetta mál hefur verið lengi í allshn., og vil ég n. til afsökunar segja það, að það er af ástæðum, sem hún gat ekki ráðið við, því að fundartími hennar er óhagstæður og rekst á flokksfundartíma.
N. er ekki sammála. Ég mun hér eingöngu tala fyrir meiri hl., en hann hefur fallizt á að mæla með, að frv. verði samþ., þó að hann vilji breyta því að nokkru leyti. Aðalbreyt. er fólgin í því að binda gildistöku l. við, að sá samningur, sem gerður var á sínum tíma við Spán og Portúgal, verði úr gildi felldur. Samkv. bréfum, sem lágu fyrir n. frá utanríkisráðuneytinu og hv. 4. þm. Reykv., er því haldið fram, að þessi samningur sé enn í gildi. Við getum ekki lagt til, að samþ. yrði það, sem riði í bág við gildandi samninga, og þess vegna leggjum við til að ný gr. komi aftan við frv., þar sem lagt er fyrir, að samningnum skuli sagt upp, en gildistaka l. miðast við, að búið sé að birta tilkynningu um uppsögnina. Síðan borgarastyrjöldin geisaði á Spáni, hafa engin veruleg viðskipti átt sér stað hvorki við Spán né Portúgal, svo að ákvæði samningsins hafa ekki verið notuð árum saman.
Önnur breyt. er sú, að í stað 3/5 hluta greiddra atkvæða til þess að útsala sé leyfð, viljum við hafa einfaldan meiri hl. atkvæða. Að öðru leyti höldum við okkur við frv. eins og það var í upphafi.