18.02.1943
Efri deild: 59. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Forseti (StgrA):

Þessu máli hefur að vísu verið frestað tvisvar áður. En ég vil þó enn einu sinni verða við óskum hv. þm. um að fresta því, og vænti ég þess þá, að undirbúningi þessum verði hraðað og hægt verði helzt að afgreiða málið næst, er það verður tekið á dagskrá.