02.03.1943
Efri deild: 67. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1089 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)
80. mál, brúargerð
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Ég skal taka fram, að þegar sameinuð samgmn. beggja d. hafði málið til meðferðar, kappkostaði hún að gera þær breyt. á brúal., sem aðkallandi væru, helzt svo, að dygði til nokkuð margra ára, og allar till. voru miðaðar við þær brýr, sem ætla mátti, að unnt yrði að byggja á næstu 15–20 árum. Athugaðar voru allar till., sem n. bárust, og flestar teknar til greina. Vitanlega er n. ljóst, að ekki er fullnægt allri brúaþörf á landinu með þessum brúm, eins og menn mega sjá af nál. og yfirlitinu, sem þar er frá vegamálastjóra. Þessar brýr eru áætlaðar ekki minna en 4 millj. kr., og vegamálastjóri telur ekki ofætlun að ljúka þeim á 18–20 árum eða jafnvel skemmri tíma, eins og ég sagði. Þar með er ekkert sagt um, að engar fleiri brýr skuli byggðar á þessum tíma.
Um till. hv. 1. þm. Eyf. skal ég taka fram, að ég er þar ekki kunnugur og gæti það valdið því, að ég hef ekki orðið var mikils áhuga á að gera þessar brýr. En nú er liðið á 3. mánuð, síðan frv. hv. þm. Barð. kom fram og kunnugt varð, hvað n. ætlaðist fyrir í þessum málum, svo að nægur tími hefði átt að vera til að sýna henni fram á nauðsyn og nytsemi þessara brúa, ef hún væri brýn og áhuginn í héraði mikill. Mér virðist áhuginn fyrst hafa vaknað við samanburð á því, hve ýmis önnur héruð fengju nú miklar brýr. Það var misskilningur, sem kom fram í ræðu hv. þm. Dal., að n. hafi hugsað öllum kjördæmum fyrir þó nokkurri úrlausn. (BSt: Lítill lækur í Eyjafirði). Ég skal ekkert fullyrða um þarfirnar í Eyjafirði. En hugsun n. og vegamálastj. var sú, að þarfirnar einar réðu úrslitum. Eigi nú að koma inn í frv. fjölda breyt. samkv. brtt. einstakra þm., getur það orðið til þess að eyðileggja allan árangur af undirbúningsstarfi n. og vegamálastjóra og stefna framkvæmd brúagerðanna í ráðleysu og glundroða. Ég verð að biðja hv. þdm. að íhuga afleiðingarnar og afgreiða frv. án þess að samþykkja slíkar brtt. Ég er ekki kunnugur við Tungufljót, en ætla, að vart sé nema klukkustundar lestargangur frá hróki upp að Tungufljótsbrú (51/2 km). Þá er það brúin á Jökulsá á Dal, vitanlega þörf brú, en eins og hv. 1. þm. N.-M. drap á, er í ráði að gera þar bráðabirgðabrú, ekki bílfæra að vísu, en viðunandi samgangnabót fyrir þá bæi, sem mest þurfa hennar, en að henni er nú komið vegarsamband um fjallveg. Vegamálastjóri hefur áætlað aðra slíka bráðabirgðabrú við Hjarðarhaga, en fyrir eru á ánni Fossvallabrúin og brú hjá Hákonarstöðum. Dalurinn er langur og mikil þörf á brúnum, en meðan ekki er kominn akvegur upp með bæjum, eru bráðabirgðabrýrnar heppilegasta lausnin. Þar sem brúin hjá Brú er í sambandi við fjallveg, virðist eðlilegt, að hún yrði byggð fyrir fjallvegafé, næsta sumar, ef hægt er.
F.h. n. beini ég því til þdm., að þrátt fyrir veilur, sem finnast kunna á frv., varist þeir að vinna á því skemmdarverk og samþykki ekki brtt., sem fyrir liggja. Þótt ein leiðrétting fengist, borgar sig ekki að fá um leið tíu breytingar til hins verra.