04.02.1943
Neðri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1110 í B-deild Alþingistíðinda. (1902)
126. mál, verzlun með kartöflur o.fl.
Pétur Ottesen:
Ég held það sé ekki rétt hjá hv. frsm., að skilgreining eftir tegundum nái ekki nema til úrvalsflokks, því að hér er um tvenns konar ákvæði að ræða: 6. gr., samkv. hvaða flokkun þær skuli seldar, en ákvæði 8. gr. taka til þess, hvað hafa má á boðstólum. Í 6. gr. stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Í 1. fl. sé allur meginþorri hreinna kartöflutegunda, sem eru vel aðgreindar.“ Hvað felur þetta í sér nema aðgreiningu eftir tegundum? Það er a.m.k. nýtt, ef það þýðir það eingöngu, að það sé ekki smælki. Ég vil því aftur beina þeim tilmælum til n., að ekki verði á þessu stigi tekið svona strangt til orða, því að það eru ekki á heimilunum skilyrði til þess að flokka svo strangt, og ég efast um, að menn t.d. á næsta hausti aðgreini kartöflur svo nákvæmlega.