02.03.1943
Neðri deild: 69. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (2015)

51. mál, virkjun Fljótaár

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. — Ég skal lýsa því yfir, að ég er fylgjandi þeirri stefnu meiri hl. n., að það verði með sameiginlegu átaki reynt að fullnægja þörfum bæði kaupstaða og sveita, en þar sem það er ljóst, að þótt sú rökst. dagskrá, sem hér liggur fyrir, verði samþ., getur það ekki aftrað því, að þessu mannvirki verði komið upp, og þar sem samþykkt hennar yrði eingöngu til þess að skapa Siglufirði fjárhagslega örðugleika, sem ekki er ástæða til að valda, segi ég nei.