17.03.1943
Neðri deild: 77. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (2075)

8. mál, vegalög

Páll Zóphóníasson:

Með því að þetta er eina leiðin milli Vestur- og Suðurlands, sem ég þekki, sem er venjulega snjólaus að vetrinum og þess vegna oftast fær, segi ég já.

Frv., svo breytt, samþ. með 18 shlj. atkv. og afgr. til Ed.