19.12.1942
Neðri deild: 22. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í B-deild Alþingistíðinda. (208)

85. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Forseti (JJós):

Hæstv. ríkisstj. hefur óskað eftir, að sem stytztur tími fari til athugunar þessa máls í n. Áður en ég slít þessum fundi, vil ég beina þeim tilmælum til form. allshn., að n. hafði samráð við allshn. Ed., svo að málið þurfi ekki að fara aftur í n., þegar til Ed. kemur. En með tilliti til þess, að klukkan er nú orðin 3 og að a.m.k. einn flokkur vill halda flokksfund fyrir næstu umr., ákveð ég deildarfund kl. 5 í dag.