25.03.1943
Efri deild: 81. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1203 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)

8. mál, vegalög

Gísli Jónsson:

Í tilefni af ummælum hv. 2. þm. Árn. vil ég segja, að það var ekki eðlilegt. að n. talaði við hann um vegatill., því að það lágu ekki fyrir neinar brtt. frá honum. Það er ekki hægt að álasa n. fyrir, að hún skuli ekki hafa talað við þm., sem höfðu ekki áhuga eða framkvæmd í sér til að koma með brtt. við frv.

Hv. 1. þm. Eyf. vil ég segja það, að n. batt sig gersamlega við till. vegamálastjóra. N. gat ekki farið að þeytast út um allar sýslur landsins til að athuga, hvar ætti að byggja vegaspotta.