25.02.1943
Neðri deild: 66. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1207 í B-deild Alþingistíðinda. (2116)
136. mál, jarðræktarlög
Frsm. (Emil Jónsson):
Landbn. fékk að sjá till. hv. þm. Ísaf., og henni var gefinn kostur á að gera hana að sinni till., þó að hún sæi ekki ástæðu til að taka því boði, þar sem hún taldi frv. vel mega vera eins og það er nú. Eina breytingin, sem leiðir af till. hv. þm. Ísaf., er sú, að ríkisstj. þurfi heimild fjárl. til að veita þetta fé til kaupa á verkfærum og vélum, en með frv. er það lagt á vald ríkisstj. einnar að gera þetta, að fengnum rökst. till. verkfæranefndar og meðmælum Búnaðarfélags Íslands. N. telur, að með brtt. hv. þm. Ísaf. séu möguleikar til þessara kaupa heldur þrengdir en hitt, og vill hún ekki mæla með till. Þó vill hún ekki gera þetta að kappsmáli og leggur það á vald hv. þd. að samþykkja till., ef henni sýnist svo.