03.03.1943
Efri deild: 68. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)

139. mál, lendingarbætur á Vattarnesi

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Ég hef litlu við það að bæta, sem fram kom í frumræðu minni við 1. umr.

Sjútvn. hefur athugað frv., og hefur hún átt kost á að athuga uppdrætti þá, sem liggja fyrir um þetta mannvirki, og kostnaðaráætlanir bæði frá árinu 1932 og síðar í áætlun frá 1939, þar sem breyting hefur verið gerð á um gerð þessa mannvirkis. N. er öll sammála um að mæla með, að frv. gangi fram. Að öðru leyti get ég vísað til þess, sem fram kom við 1. umr. málsins.