22.01.1943
Efri deild: 39. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1247 í B-deild Alþingistíðinda. (2226)
37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
Bjarni Benediktsson:
Ég vil ítreka ummæli, sem ég hafði í gær, um það að skora á hæstv. forseta að taka á dagskrá á næsta fundi d. frv. til l. um stækkun lögsagnarumdæmis Rvíkur. Það er nú þegar hálfur mánuður síðan meiri hl. n. skilaði áliti um málið, og það bólar ekki enn á nál. minni hl. Mér þykir ekki fært lengur að tefja slíkt mál sem þetta með slíkum hætti og vildi skora á hæstv. forseta að taka málið á dagskrá á næsta fundi hv. d.