30.03.1943
Neðri deild: 86. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1281 í B-deild Alþingistíðinda. (2261)
37. mál, lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
Forseti (JJós):
Mér hefur borizt fyrirspurn um það, hvers vegna mál þetta hafi verið tekið svo skyndilega og fyrirvaralaust á dagskrá. Í gær var málið á dagskrá og var það fyrir beiðni þeirra, sem áhuga hafa á því, að málið gangi fram. Geri ég ráð fyrir, að það sé svo oftast. En vegna þess að málið komst ekki að í gær, var það tekið af dagskrá þá og tekið svo á dagskrána í dag.