19.03.1943
Neðri deild: 79. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í B-deild Alþingistíðinda. (2324)

154. mál, Kennaraskóli Íslands

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Ég vil minna hv. 7. þm. Reykv. á það, að í 6. gr. frv. sjálfs, eins ég það liggur fyrir, er þessi setning á eftir, þar sem talað er um, að hann hafi staðizt próf: „er sýni, að hann hafi lokið minnst tveggja vetra gagnfræðanámi“. Í þessu felst það, að það fellur inn í l. að ákveða, við hvað skuli miðað, en ekki, að það sé reglugerðarákvæði.