28.01.1943
Neðri deild: 44. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í C-deild Alþingistíðinda. (2680)

45. mál, jöfnunarsjóður aflahluta

Forseti (JJós):

Hér liggja orðið fyrir margar brtt., og hefur mér nú borizt í hendur enn ein brtt. skrifleg. Ég vil nú til hægðarauka fyrir þm. leyfa mér að stinga upp á því, að atkvgr. um frv. verði frestað, unz tími hefur unnizt til að prenta skriflega brtt., og vildi ég leyfa mér að spyrja hv. flm., hvort hann fyrir sitt leyti gæti ekki fallizt á, að það yrði gert.