19.12.1942
Efri deild: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í C-deild Alþingistíðinda. (2702)

66. mál, skólasetur á Reykhólum

Bjarni Benediktsson:

Ég get ekki fallizt á, að grg. beri með sér, að hér sé á ferðinni búnaðarskóli, heldur sé fremur um að ræða héraðsskóla, breyttan í nokkurs konar búnaðarskóla, þó ekki eins og er á Hvanneyri eða Hólum, heldur með alveg sérstöku sniði.

Ég lít svo á, að hér sé nánast um að ræða breyt. á héraðsskólakerfinu og þetta mál eigi því beint heima í menntmn.