19.12.1942
Efri deild: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í C-deild Alþingistíðinda. (2703)
66. mál, skólasetur á Reykhólum
Hermann Jónasson:
Ég skal nú ekki lengja þessar umr. meira, en það er staðreynd, að búnaðar- og húsmæðraskólar eru undanskildir starfssvið kennslumálaráðuneytisins. Samkv. 5. gr. frv. er það landbrh., sem mundi setja þær reglur, er þar um getur. Á því er enginn vafi.
Hér er gert ráð fyrir sérstökum búnaðarskóla með námskeiðum. Ég meina því, að frv. eigi að fara í landbn. og það mundi líklega verða lagt fyrir búnaðarþing til umsagnar, því að við verðum að gæta að því, að Vestfirðingar eru einna bezt félagslega þroskaðir af landsmönnum. Það hafa þeir sýnt í ýmsu, og þeir munu sjálfsagt vilja, að málið verði lagt fyrir búnaðarþing.