09.03.1943
Efri deild: 70. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í C-deild Alþingistíðinda. (2722)

118. mál, jöfnunarsjóður vinnulauna

Bjarni Benediktsson:

Þessu máli var vísað til allshn., og varð hún sammála um að leita umsagnar stjórnar Vinnuveitendafélags Íslands og Alþýðusambands Íslands um þetta mál. Svar stj. Vinnuveitendafélagsins hefur borizt fyrir alllöngu síðan, og var hún á móti málinu, en svar stjórnar Alþýðusambandsins barst fyrst í gær. Allshn. hefur hins vegar talið, að ekki væri hægt að afgreiða málið nema að fenginni umsögn þessara aðila, en nú, þegar hún er fengin, mun málið verða tekið fyrir og afgr. frá n. við fyrsta tækifæri.