22.03.1943
Efri deild: 78. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í C-deild Alþingistíðinda. (2728)

118. mál, jöfnunarsjóður vinnulauna

Gísli Jónsson:

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þetta svar og vil taka það fram um leið, að ég get fellt mig við þessa afgreiðslu málsins. Hæstv. forsrh. hefur einmitt mikla reynslu í svona málum vegna þeirra starfa, sem hann hefur gegnt sem sáttasemjari ríkisins, og ég veit, að málið verður í góðum höndum, og ég get treyst hæstv. ríkisstj. til að láta það ganga þá leið, sem æskilegust er.