29.01.1943
Efri deild: 46. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í C-deild Alþingistíðinda. (2785)
120. mál, kynnisferð sveitafólks
Páll Hermannsson:
Það hefur verið haft orð á því í d., að þetta frv. væri dálítið losaralegt, og skal ég játa, að vel má segja það, því að þótt það tvennt, sem í frv. felst, annars vegar að ríkissjóður leggi fram nokkra fjárhæð til að greiða fyrir því, að það fólk í sveitum, sem kemur ekki til með að heyra undir l. um orlof, geti létt sér upp, og hins vegar, að ríkisstj. skuli í samráði við Búnaðarfélagið setja ákvæði um þetta með reglugerð, sé gott, það sem það nær, þá er það rétt, að d. hefur gengið mjög lauslega frá þessu og að það kemst ekki í fast form, fyrr en reglugerð hefur verið sett um það.
Í sambandi við brtt. frá hv. 2. þm. Árn., á þskj. 294, er gerð tilraun til að víkja þessu máli að vissu leyti inn á ákveðna braut, sem sé þá, að sveitar- og bæjarstjórnir skuli hafa að vissu leyti hönd í bagga með þessu fé. Ég er á engan hátt mótfallinn tilgangi þessa hv. þm., en ég held, að þessi breyt. geti tæpast fallið vel í þann farveg, sem ég hef hugsað mér, að þetta mál renni í. Ég hafði hugsað mér, að Búnaðarfélag Íslands sæi um að veita þessu fé yfir til búnaðarsambandanna, en þau veittu það svo aftur til búnaðarfélaganna, og ég held, að það sé eðlilegast. Þess vegna geri ég ráð fyrir, að ég geti ekki fallizt á þessa till., ekki fyrir það, að tilgangurinn geti ekki verið góður, heldur hitt, að ég vil ekki stuðla að því, að ákveðið sé í l., að hreppsnefndir skuli fara með þetta fé. Tveir hv. þm. Sósfl. hafa borið fram till. um, að veitt verði viss upphæð og greidd á hana vísitöluuppbót. Þetta er sómasamleg upphæð og sjálfsagt talsvert há nú, en hún er að mínu viti samt lægri en frv. gerir ráð fyrir. Þar er gert ráð fyrir 10 kr. lágmarksupphæð til hvers býlis. Í landinu munu nú vera um 6 þús. býli, svo að heildarupphæðin mundi verða 60 þús. kr. eða rúmlega það. Vera má, að upphæðin yrði hærri samkv. brtt., meðan Má vísitala gildir; það fer eftir jarðræktarframkvæmdum, því að greidd er vísitöluuppbót á jarðræktarstyrkinn, og ef jarðræktarframkvæmdir yrðu nálægt því, sem þær voru fyrir stríð, þá yrði upphæðin lík framvegis því, sem hv. þm. Sósfl. stinga upp á. Ég mun því ekki geta aðhyllzt þessa brtt.
Sumir hafa talað um, að þessi upphæð væri lítil. Það er að vissu leyti rétt. Hún er ekki há, þegar litið er á fólksfjöldann, en má þó telja sómasamlega hjálp frá ríkinu þessu fólki til handa, enda má gera ráð fyrir, að þetta fólk sé vant lágum upphæðum. Félagsskapurinn heima fyrir mundi líka hjálpa til. Hefur víða verið unnið að því undanfarið.