04.02.1943
Efri deild: 47. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í C-deild Alþingistíðinda. (2787)
120. mál, kynnisferð sveitafólks
Brynjólfur Bjarnason:
Ég hef borið þessa brtt. hér fram á þskj. 302, við fyrri brtt. mína og hv. 7. landsk. á þskj. 274 vegna þess, að ef fyrri brtt. yrði samþ., mundi framlagið á normaltímum geta orðið lítið eitt lægra en ef frv. yrði samþ. óbreytt. En samkv. þessari seinni brtt. gæti það aldrei orðið minna en samkv. frv. Ég vonast eftir því, að hv. þm. fylgi þessari brtt.