01.03.1943
Efri deild: 66. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í C-deild Alþingistíðinda. (2842)

120. mál, kynnisferð sveitafólks

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vildi spyrja hæstv. forseta, hvort ekki væri hægt að taka málið til 1. umr. nú á þessum fundi. Það hefur nú verið svo mikið rætt við þessar umr., sem hér hafa farið fram, að það ætti að geta gengið fljótt að afgreiða það til 2. umr. og n., og það mundi flýta mikið fyrir heildarafgreiðslu málsins að geta tekið það fyrir þegar á þessum fundi og komið því til nefndar.