16.02.1943
Efri deild: 57. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í C-deild Alþingistíðinda. (2955)

60. mál, sjúkrahús o.fl.

Steingrímur Aðalsteinsson:

Ég vil aðeins endurtaka það, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að réttara muni, að hv. allshn. fái þessar brtt., sem hér liggja fyrir, til athugunar og samræmingar, þannig að þær falli betur inn í frv. en þær munu e.t.v. gera, ef þær yrðu samþ. núna. Ég vil því leyfa mér að fara fram á, að umr. verði. frestað og málið tekið út af dagskrá.