10.04.1943
Neðri deild: 96. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (3040)

155. mál, ríkisborgararéttur

Stefán Jóh. Stefánsson:

Á þskj. 716 ber allshn. fram brtt., sem ekki er getið á dagskránni. Er hún fram borin til samræmis við það, sem n. lagði til, áður en málið fór til hv. Ed. Vænti ég þess, að hv. d. sé sama sinnis og áður.