16.02.1943
Neðri deild: 59. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í C-deild Alþingistíðinda. (3049)

21. mál, virkjun Andakílsár

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég ætla bara fyrir hönd n. að geta þess, að það hefur ekki verið tilætlunin að tefja þetta fossamál umfram önnur mál. Við höfum þegar afgr. hliðstætt mál, Siglufjarðarvirkjun, en það mál hefur ekki komizt á dagskrá vegna fjárlaganna og öðrum af sams konar ástæðum. En við munum sjá um að koma með nál. um Andakílsfossana það snemma, að þessi mál geti orðið nokkurn veginn samferða.