15.01.1943
Efri deild: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (314)

89. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Bjarni Benediktsson:

Ég vil eingöngu spyrja hæstv. forseta, hvort áríðandi sé að hafa þann fund í dag, ég geri ráð fyrir með mig og fleiri, að óþægilegt sé að vera hér yfir engu, en ég vil gjarnan vera hér viðstaddur, þegar svona merkilegt mál verður til 2. umr., en veit ekki, hvaða nauðsyn er að binda okkur hér, ef svo yrði ekki unnt að halda þennan fund í dag. Ég vil því spyrja hæstv. forseta, hvort ekki væri hægt að halda þennan fund á morgun eða þá eftir kvöldmat í kvöld.