18.01.1943
Neðri deild: 36. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í C-deild Alþingistíðinda. (3156)
95. mál, eignarnámsheimild á Nesi
Flm. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. — Ég get verið fáorður um þetta frv. Það er þannig til komið, að bæjarsjóður á nú í óskiptu bæjarlandi, sem lögsagnarumdæmið nær yfir, 18 af 29 hundruðum að fornu mati, hin 11 eiga 6 menn eða 7. Bæjarstjórn er nauðsynlegt að fá umráðarétt yfir öllu þessu landi og óskar því eftir heimild til að taka það eignarnámi. Árekstrar hafa orðið milli bæjarstjórnar og Minna einstöku eigenda út af ráðstöfun landsins, og ég held, að almennt sé viðurkennd nauðsyn bæjarfélagsins til að ráða yfir landinu. Neskaupstaður er einn af þeim kaupstöðum, sem ræður ekki yfir öllu sínu landi, og er þetta frv. flutt til að ráða bót á því.
Ég óska, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og allshn.