05.02.1943
Neðri deild: 50. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (3316)
68. mál, vegagerð og símalagning
Frsm. (Gísli Sveinsson):
Herra forseti. — Þegar þessi þáltill. kom fram og kom til athugunar hjá samgmn., þá þótti bezt að dómi nm. að askja skýrslna frá forstjórum þeirra stofnana, sem hér eiga hlut að máli, þ. e. vegamálastjóra og póst- og símamálastjóra. Svar þeirra er skýrslur þær, sem prentaðar eru með nál. á þskj. 286 sem fylgiskjal.
Að fengnum þessum skýrslum og við athugun málsins yfirleitt var n. ásátt um að leggja til, að till. væri samþ. með þeim breyt., sem sjá má á téðu þskj., og telur, að það sé í samræmi við þann tilgang, er flm. till. sögðust hafa með flutningi hennar.
Þetta er allt rannsóknaratriði og sjálfsagt að láta þá rannsókn fara fram með aðstoð þeirra aðila, sem hafa með þessi mál að gera. Þess vegna hefur n. breytt orðalagi till. lítils háttar. Að svo stöddu sé ég ekki ástæðu til að koma með fleiri aths., en legg til, að málið nái fram að ganga með þeim brtt., sem hér er lagt til, að gerðar séu.