08.01.1943
Sameinað þing: 14. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (3342)
46. mál, flugmál Íslendinga
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Till. þessi er flutt með það fyrir augum, að flugmálum landsins verði aukinn gaumur gefinn. Nauðsyn þess er auðsæ af því, sem gerzt hefur, síðan yfirstandandi styrjöld hófst. Svo var komið fyrir stríð, að reglubundnum flugferðum hafði verið komið á í mörgum löndum, og hefur flugsamgöngum mjög fleygt fram síðan um öryggi.
Það væri mikill fengur að því, að flugferðir væru teknar upp hér á landi í vaxandi mæli, jafnvel við önnur lönd. Þess vegna er nauðsynlegt að athuga í samráði við Flugfélag Íslands skilyrði til flugvalla- og flugskýlagerðar víðs vegar um landið. Skortir mikið á, að allir landshlutar hafi jafna aðstöðu til þess að njóta flugsamgangna, eins og sakir standa, sökum skorts flugvalla og flugskýla fyrir sjóflugvélar.
Flugfélag Íslands hefur haldið uppi reglubundnum flugferðum milli Rvíkur og Akureyrar og jafnframt gert athuganir á flugvallastæðum víðs vegar um landið, en eins og ég tók áðan fram, þá er flugvalla- og flugskýlagerð mjög nauðsynleg, til þess að hægt verði að koma á reglubundnum flugferðum til allra landshluta. Og það verður að samræma flugsamgöngurnar heildarsamgöngukerfi landsmanna.
Flugfélag Íslands hefur haft forustuna að undanförnu í þessum framfaramálum. Það hefur vakið áhuga landsmanna á framtíð flugsamgangna í þessu landi. Það er trú flm. þessarar till., að flugsamgöngur eigi mikla framtíð hér á landi. Hinar miklu fjarlægðir hafa skapað nauðsyn þeirra. En í þessum málum sem öðrum má að engu hrapa. Allur undirbúningur framkvæmda verður að vera traustur og markvís, þegar valdir verða staðir flugvalla eða flugskýla og dráttarbrauta.
Í grg. till. er bent á, að eðlilegt sé, að flugsamgöngur hefjist frá Íslandi, er styrjöldinni lýkur. Flm. höfðu athugað þetta, er þeir fluttu till., en þótti mesta nauðsyn bera til þess að stuðla að bættum flugsamgöngum innanlands. Þessi till. okkar er fyrsta sporið, sem stíga verður til þess að koma flugmálum okkar Íslendinga ,í viðunandi horf.
Ég hygg, að þess gerist ekki þörf að fjölyrða öllu meira um þetta mál. Mér er kunnugt um, að flugfélagið hefur sent Alþ. erindi, þar sem þess er farið á leit, að félagið verði stutt öfluglegar en áður. Höfum við flm. þessarar till. bent á það, að brýna nauðsyn beri til þess, að því erindi verði sinnt.
Ég legg svo til, að till. verði að þessari umr. lokinni vísað til allshn., og enn fremur vænti ég þess, að hv. þm. taki þessu mikla framfaramáli vel og veiti því þann atbeina, sem það verðskuldar.