18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (35)

Rannsókn kjörbréfa

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ég tek þessi ummæli hv. þm. V.-Húnv. sem samþykki Framsfl. fyrir því, að stj. láti gefa út opinberlega öll plögg í þessu máli, og það mun ég gera. Ég vil nú aðeins segja honum og þingheimi frá því, að landbrh. hefur í hverju spori, sem stigið hefur verið í þessu máli, haft skrifleg ummæli frá Búnaðarfélagi Íslands.