12.02.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í D-deild Alþingistíðinda. (3563)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. — Ég þarf ekki að halda langa ræðu um þessa till. til þál., því að hún er öllum hv. þm. vel kunn og skýrir sig sjálf. Það er leitað heimildar fyrir því, að hinar sérstöku launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins, sem ná til 1. júlí þ. á., framlengist til 31. des. s. á. Þessi till. er orðuð í samræmi við fyrri till. um þessi mál. Ég v ona, að hv. Alþ. bregðist vel við og samþykki till. óbreytta.