10.03.1943
Sameinað þing: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (3595)
135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins
Gísli Jónsson:
Ég skal vera stuttorður. Það hefur komið fram, eins og ég benti á í fyrstu ræðu minni, að þetta mál mun valda erfiðleikum. Ég beindi því þá til hæstv. fjmrh., hvort hann vildi ekki taka það til baka. Ég hygg, að það væri ekki óviturlegt jafnvel á þessu stigi málsins. Það er ekki nauðsynlegt að ljúka því nú. Ef Alþ. situr 1. júlí, þá er hægt að taka það upp á dagskrá. Og ef ekki, þá er hægt að gefa út bráðabirgðalög. Ég vil því aftur mælast til þess, að hæstv. fjmrh. taki till. til baka.