10.03.1943
Sameinað þing: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í D-deild Alþingistíðinda. (3610)

135. mál, launabætur embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins

Pétur Ottesen:

Ég vil skjóta því til hæstv. forseta, hvort ekki væri ástæða til þess, þar sem hér er komin fram skrifl. brtt., að þessi brtt. væri borin upp með þeim hætti, að hún lægi fyrir prentuð. Vildi ég því mælast til þess, að hæstv. forseti tæki nú þetta mál af dagskrá, svo að brtt. þessi gæti komið eftir eðlilegum leiðum inn í þingið.