16.03.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í D-deild Alþingistíðinda. (3631)
151. mál, læknisbústaður Eyrarbakkalæknishéraðs
Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Það eru ekki nema örfá orð. — Efni þessarar till. er einfalt, en heftir sína þýðingu fyrir héraðsbúa. Það hefur komið til orða að flytja læknisbústaðinn á Eyrarbakka að Selfossi, en eins og eðlilegt er, mun þeim þar neðra þykja miður, að læknirinn fjarlægist þá mikið, því að þar er talsvert fjölmenni. Hins vegar er læknishéraðið svo stórt og fjölmennt, að það getur vel komið til mála að skipta héraðinu.
Ég vona, að Alþ. samþ. þessa till. og hæstv. stj. taki henni vel, og þá vil ég f. h. okkar flm. óska, að hæstv. stj. athugi málið á þeim grundvelli, hvort ekki geti komið til mála að skipta læknishéraðinu í tvennt.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frekar, en vona, að Alþ. samþ. till.