30.03.1943
Neðri deild: 86. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í D-deild Alþingistíðinda. (3654)

158. mál, útreikningar þjóðarteknanna

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Ég þarf ekki að hafa um þetta mál mörg orð við þessa framhaldsumr. Þegar till. var síðast til umr., gerði ég nokkra grein fyrir því, hvernig flm. hennar hafa hugsað sér, að þessi útreikningur, sem till. fjallar um, yrði framkvæmdur. Málið hefur verið tekið fyrir í fjhn., eins og fram kemur í nál. hennar á þskj. 613, og hefur hún orðið sammála um að mæla með því, að till. verði samþ. eins og hún liggur fyrir á þskj. 530.