05.04.1943
Sameinað þing: 38. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í D-deild Alþingistíðinda. (3785)

161. mál, síldarmjöl til fóðurbætis

Flm. (Páll Zóphóníasson):

Ég mótmæli því, að málinu sé frestað. Því hefur þegar verið frestað tvisvar vegna þess, að hæstv. atvmrh. var ekki viðstaddur, en hann er nú mjög sjaldséður hér í hv. d. Þeir hv. þm., sem hafa hug á því, að hann sé viðstaddur, er rætt er um málið, ættu að tryggja sér fyrir fram, að svo sé.