12.04.1943
Sameinað þing: 41. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í D-deild Alþingistíðinda. (3804)

175. mál, virkjun Andakílsár

Frsm. (Pétur Ottesen):

Ég sé, að nál. fjvn. á þskj. 721 hefur ekki verið tekið með á dagskrána, en því var útbýtt á þessum fundi og hljóðar svo, að fjvn. hafi athugað till. og leggi til, að hún verði samþ. óbreytt. Að öðru leyti get ég skírskotað til þess, sem ég hef sagt við fyrri umr. málsins, og sé ekki ástæðu til að bæta þar neinu við.