12.04.1943
Sameinað þing: 41. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í D-deild Alþingistíðinda. (3839)
167. mál, skipasmíðastöðvar í Reykjavík og strandferðir
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. — Á Alþ. 1941 var samþ. þál. um innflutning á efni til skipasmíða og um skipasmíðastöð. Í henni segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að greiða eftir mætti fyrir innflutningi efnis til skipasmiða, enn fremur að láta hið fyrsta fara fram ýtarlega athugun á, hver kostur sé þess að reisa skipasmíðastöð hér á landi, þar sem smíðaðir verði togarar og stærri skip. Heimilast ríkisstj. nauðsynlegt fé úr ríkissjóði til þessarar athugunar.“
Eins og þessi þál. ber með sér, er ætlazt til þess, að ríkisstj. láti fara fram ýtarlega athugun á því, hver kostur sé á að reisa hér skipasmíðastöð. Ég vil því spyrja hv. 2. þm. S.-M., en hann var þá í ríkisstj., hvort sú stj., sem hann sat í, hafi gert nokkuð í þessum efnum. Ég fagna því, að þessi þáltill. skuli vera komin fram, en ég vil gjarnan vita, áður en hún er samþ., hvað hæstv. fyrrv. ríkisstj. hefur gert í þessum málum. Það er vitað mál, að það er tilgangslítið að samþykkja þannig þál. ár eftir ár um sama efni og láta þannig hrúgast upp skjöl, sem lögð eru til hliðar, og ekkert gert í málunum.