13.04.1943
Neðri deild: 100. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í D-deild Alþingistíðinda. (3880)

178. mál, útgáfa á Njálssögu

Finnur Jónsson:

Ég tel rétt að greiða fyrir því, að þessi ágæta bók, Njála, komist inn á hvert heimili, og fyrst ekki fékkst samkomulag um það, að fornritaútgáfan hefði þessa útgáfu með höndum, þá tel ég það næstbeztu leiðina, að menntamálaráð hafi hana með höndum, og segi því já.