06.01.1943
Sameinað þing: 13. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í D-deild Alþingistíðinda. (3915)

20. mál, kjarnafóður og síldarmjöl

Forseti (HG):

Þar sem umr. um þetta mál virðast nú munu ætla að ganga úr hófi fram, en margir eru enn á mælendaskrá, geri ég það að till. minni, að umr. verði lokið, þegar þeir hv. þm. hafa talað, sem nú eru þegar á mælendaskrá, og að ræðutími verði styttur niður í 5 mínútur. Vil ég bera þetta undir atkv. hv. þm.