06.02.1943
Neðri deild: 51. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í D-deild Alþingistíðinda. (3954)

123. mál, rafvirkjun fyrir Vestur-Skaftafellssýslu

Skúli Guðmundsson:

Í sambandi við þessa þáltill. vil ég benda á það, að í þessari d. hefur áður komið fram till. til þál. um sams konar efni. Sú till. er á þskj. 177, er flutt af hv. 2. þm. Eyf. og er um það, að stj. verði falið að láta fara fram athugun á því, hvort hægt verði að bæta úr raforkuþörf nokkurs hluta af Eyjafjarðarsýslu. Þessi till. kom til umr. hér í deildinni 15. jan. síðast liðinn, og var henni vísað til fjhn. til athugunar. Vildi ég því leggja til, að sama meðferð verði höfð um þessa till., þar sem hér er um sams konar mál að ræða. Það virðist vera samræmi í því, að báðar till. fái sams konar athugun.