17.03.1943
Neðri deild: 77. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í D-deild Alþingistíðinda. (3960)

123. mál, rafvirkjun fyrir Vestur-Skaftafellssýslu

Skúli Guðmundsson:

Það er misskilningur hv. 10. landsk. (GSv), að nm. í fjhn. hafi verið búnir að lofa að mæla með því, að till. yrði samþ. óbreytt. Ég hét að gera mitt til, að hún fengi fljóta afgreiðslu, eins og varð, og aðrir nm. munu munu sennilega ekki hafa lofað meira. Hér er ekki um nein svik að ræða.