08.04.1943
Efri deild: 92. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í D-deild Alþingistíðinda. (3999)
160. mál, æskulýðshöll í Reykjavík
Hermann Jónasson:
Ég ætlaði að fara fram á það, að þessu máli yrði frestað nú, en það er kannske of seint, og hæstv. forseti hefur kannske ekki aðstöðu til að breyta til um það, þar sem sú ósk kemur ekki fyrr en svona seint.
Ástæðan til þess, að ég hef ekki komið með nál. í þessu máli, er sú, að því er haldið fram í þeirri n., sem um mál þetta fjallaði, að þeir aðilar, sem þarna eru tilnefndir, sem sérstaklega eru íþróttafélögin, sem sérstaklega er ætlazt til, að vinni að þessu máli og tilnefni menn til þess að vinna að þessu máli, þeir vildu fyrst ekkert af málinu vita og ekki að málinu starfa. Og á þeim grundvelli kom meiri hl. n. fram með þá rökst. dagskrá, sem hér liggur fyrir. Nú hef ég ekki kynnt mér þetta mál, áður en það var borið hér fram og ekki haft aðstöðu til að kynna mér þær staðhæfingar, sem ég að svo komnu get ekki véfengt án rannsóknar, sem fram hafa komið frá meiri hl. n. um það, að a.m.k. mörg af félögunum, ef ekki flest, vilji ekki starfa að málinu. Það liggur í hlutarins eðli, að það kostaði mig verulega vinnu að tala við þessi félög, sem eru ekki fá, um það, hvort það mundi ekki vera hægt að fá þau til samstarfs um málið, þó að ég vilji ekki vefengja staðhæfingar n. um það, að þessi félög vilji ekki að málinu vinna, þá lít ég svo á, að þessi staðhæfing sé nokkuð vafasöm. Og ég get ekki fellt mig við það a ð vera á móti þáltill. eins og hún er borin fram, ef gerð er á henni lítils háttar breyt., sem ég hafði hugsað mér að koma fram með, að því órannsökuðu, hvort þessi staðhæfing hafi við nokkur rök að styðjast. Ég hef áður borið fram frv., sem hefur haft ákaflega mikla þýðingu fyrir íþróttastarfsemina í landinu. Ég hygg, að það samstarf, sem þá fór fram af hálfu þeirra aðila, hafi orðið til þess, að íþróttal. hafa a. m. k. unnið eins mikið gagn eins og menn settu ýtrustu vonir til, þegar l. voru sett. Þess vegna vil ég ekki falla frá því að óathuguðu máli, að þessi þáltill. verði samþ. með lítils háttar breyt., sem ég vildi bera fram. Ég tel eðlilegt, að ungmennafélögin taki þátt í þessu starfi, og ég hefði komið með nokkrar ýtarlegar brtt. um það, ef mér hefði unnizt tími til að athuga nánar þetta mál. Nú er það tekið fram í þessari dagskrártill., að það eigi að vísa málinu frá í trausti þess, að ríkisstj. og bæjarstjórn Rvíkur láti hið fyrsta fara fram í sameiningu og samráði við æskulýðsfélög bæjarins athugun á skilyrðum til þess að láta reisa og starfrækja æskulýðshöll í Rvík, án þess að þetta sé svo nánar til tekið. Ég álít, að með þessari dagskrá, ef samþ. verður, sé málið sett of mikið inn á þann grundvöll, að bæjarstjórn Rvíkur og ríkisstj. eigi að leysa þetta mál. Mér þykir líklegt, að málið verði aldrei vel leyst, nema með því móti, að það takist að fá íþróttafélögin og æskulýðsfélögin, a.m.k. megnið af þeim hér í bænum, til þess að vera samtaka um að leysa þetta mál. Það var tortryggni hjá þessum félögum gagnvart íþróttal., en með því að ræða við þessi félög var hægt að eyða þeirri tortryggni. Eftir að það mál var komið gegnum Nd., vildu þessi félög ekkert af málinu vita. En þá var leitað til félaganna á ný og málið skýrt fyrir þeim, sem varð til þess, að þau félög, án undantekningar, vildu standa að því, að þau l. væru sett, og þar með féllu þau alveg frá sinni fyrri afstöðu til málsins. Og mér virðist, að sama muni gilda um þetta mál, að því þurfi að koma inn á þann áhugamannagrundvöll, sem gæti orðið til þess, að málið leystist.
Ég býst við, að hæstv. forseti þyrfti ekki að fresta því nema til morguns að ljúka umr. um málið, en mér finnst það ekki hættulegt málinu, þó að það væri gert. Nú hefur hæstv. forseti lýst yfir, að umr. væri lokið. Og það er ekki annarra sök en mín, að ekki hefur verið farið fram á það við hæstv. forseta fyrr, að hann frestaði málinu, en ástæðan til þess, að ég varð seinn með það, var sú, að ég var að ræða um málið hér niðri í herbergi Framsfl. við einn af þeim mönnum, sem ég tel, að eigi að hafa samstarf við um þetta mál, samkvæmt því, sem ég hef sagt. Og það er ekki hægt að tala við íþróttafélögin um þetta mál nema þannig, að í það fari nokkur tími.