19.02.1943
Sameinað þing: 27. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í D-deild Alþingistíðinda. (4040)
105. mál, virkjun Lagarfoss
Eysteinn Jónsson:
Ég vil aðeins benda hv. 6. landsk. á, að við erum ekki í sjálfu sér að hafa neitt á móti þessari till. hans og það er alveg óþarft fyrir hann að vera að biðja afsökunar á þessari till. En það, sem ég vildi taka fram, var, að það hefði alveg verið óþarft fyrir hann að bera fram þessa þáltill., því að hann hefði getað sparað sér það ómak, ef hann hefði látið svo lítið að tala við okkur, sem höfum barizt fyrir þessu máli. Þá hefði hann fengið upplýsingar þær, sem ég hef hér þegar gefið, að ákveðið er, a ð rannsókn á skilyrðum til rafmagnsorku úr Lagarfossi verður framkvæmd á komandi sumri. Þetta hefur hæstv. atvmrh. tjáð mér, og n. getur, til þess sjálf að ganga úr skugga um þetta, fengið þessa yfirlýsingu hjá hæstv. ráðh., ef hún æskir hennar.