10.02.1943
Efri deild: 53. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í B-deild Alþingistíðinda. (417)

132. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1943

Frsm. minni hl. (Bjarni Benediktsson):

Í þessum umr. hefur lítið komið fram, sem ég þarf að svara. — Það hefur komið fram brtt. frá aðalstuðningsflokki hæstv. ríkisstj. um að fresta samkomudegi Alþ. til 15. marz n.k., og þar eð ekki hefur gefizt tími til að athuga þessa brtt., þá vildi ég fara þess á leyt, þar eð enn fremur ekki liggur ljóst fyrir um úrslit máls þessa að atkvgr. um það verði frestað þar til kl. 11/2. á morgun, enda þótt umr. verði lokið í kvöld.