10.02.1943
Efri deild: 53. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í B-deild Alþingistíðinda. (425)

132. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1943

Gísli Jónsson:

Það var auðvitað í sambandi við annað mál, sem hæstv. fjmrh. í dag minntist á, að hann mundi tilbúinn með sín frv. eftir nokkra daga. En nú hefur því verið lýst yfir, að þau mál verði lögð fyrir innan fárra daga, hvernig sem fer um þetta mál, og tel ég það nokkurs virði fyrir hv. d. að vita um það atriði.